Byrjendanámskeið

Námskeiðið er kjörin leið til að kynnast kayaksportinu og prófa nýtt og spennandi áhugamál. Ef þú ert byrjandi þá er þetta rétta leiðin til að taka réttu skrefin undir öruggri handleiðslu þaulreyndra þjálfara.

Byrjendanámskeið
Guðni Páll ViktorssonEigandi og leiðsögumaður

Næstu námskeið:

Nýjar dagsetningar koma seinna.


Áhugi á kayak?

Námskeiðið er kjörin leið til að kynnast kayaksportinu og prófa nýtt og spennandi áhugamál. Ef þú ert byrjandi þá er þetta rétta leiðin til að taka réttu skrefin undir öruggri handleiðslu þaulreyndra þjálfara.

Mikil áhersla er lögð á öryggisatriði, vellíðan þáttakenda og tryggt að námskeiði loknu ertu með nægilega grunnþekkingu til að njóta kayakróðurs á sjó.

Námskeiðin eru kennd í Geldinganesi þar sem Kayakklúbburinn í Reykjavík hefur aðstöðu. Kayakklúbburinn er með skipulagða róðra allt árið um kring og ferðir yfir sumartímann.

Að námskeiði loknu er um að gera að ganga í Kayakklúbbinn og taka þátt í félagsróðrum þar sem vel verður tekið á móti þér, félagsróðrar er frábær leið til að stunda sjókayak í skemmtilegum félagsskap og mögnuðu umhverfi.

Innifalið er öll kennsla og allur búnaður fyrir tvo daga.

Skráning á info@seakayakiceland.is

Verð:  45.000 kr

Sjáumst á sjó!

Innifalið í námskeiðsgjöldum eru afnot af eftirfarandi búnaði:

  • Bátur
  • Ár
  • Þurrgalli
  • Vesti
  • Svunta

Búnaður sem þáttakendur koma sjálfir með:

  • Skór sem þola að blotna
  • Hlýtt grunnlag (þunn ull eða flís)

Gott er að hafa eftirfarandi með:

  • Sólarvörn (Það má vera bjartsýnn)
  • Sólgleraugu -eru á ábyrgð eigenda ef tapast í sjónum.
  • Vökva og orkustykki
  • Handklæði
  • Hlý föt til að fara í eftir námskeiðið.
Byrjendanámskeið
Sea Kayak Iceland
  • Dagur 1 (3 klst.)

    • Kynning á búnaði og bát
    • Nauðsynleg öryggisatriði kynnt fyrir kayakróður
    • Róðratækni og stuðningsáratök
  • Dagur 2 (4 klst.)

    • Bátastjórnun og jafnvægi
    • Æfingaróður þar sem farið verður yfir róðratækni og bátastjórnun.
    • Félaga- og sjálfsbjörgun.
      Æfingar til að koma sjálfum sér og félaga sínum aftur upp í bátinn eftir óvænta veltu.